Skrifað 01. febrúar 2010
Vísindaferð í EJS + útgáfupartý Háskólablaðsins
Næstkomandi föstudag(5. febrúar) verður vísindaferð í EJS. Eftir vísindaferðina verður farið með rútu í útgáfupartý Háskólablaðsins sem verður haldið í Vodafonehöllinni. Vísindaferðin er fyrir 50 manns og hefst klukkan 17:45 í höfuðstöðvum EJS á Grensásvegi. Gengið er inn á húsinu aftanverðu.
EJS ehf. er einn stærsti söluaðili landsins á tölvum, útstöðvum, miðlarabúnaði, afgreiðslutækjum og tilheyrandi þjónustu. Starfsmenn leggja allt kapp á að veita framúrskarandi þjónustu og líta svo á, að til sé lausn á öllum vandamálum. EJS býður viðskiptavinum eingöngu upp á bestu fáanlegu lausnir og búnað til þess að tryggja að rekstur upplýsingakerfa gangi sem best fyrir sig. EJS hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem eitt öflugasta upplýsingatæknifyrirtæki landsins og markmið starfsmanna er að gera enn betur á árinu 2009.
Skráning í ferðina hefst á myschool kl 11:50, miðvikudaginn 3. febrúar og lýkur 4. febrúar kl 23:59.
Kv. Stjórnin




