M Þ M F F L S
« júlí 2010 »
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31
Pragma logo

Skrifað 08. febrúar 2010

Framadagar 2010 - 10. febrúar í Háskólabíói

def

Markmið Framadaga er að sem flestir háskólanemar, óháð skóla eða námsbraut, njóti góðs af þeim. Framadagar er frábær vettvangur fyrir fyrirtæki til þess að komast í persónuleg kynni við ungt og metnaðarfullt háskólafólk og tilvonandi starfskrafta sína.

Lögð verður áhersla á nýsköpun og tækifæri á þeim tímum sem við göngum nú í gegnum og verða mörg af fremstu nýsköpunarfyrirtækjum landsins á svæðinu.

Svo dagurinn verði sem skemmtilegastur munum við vera með lifandi tónlist og  verða örfyrirlestrar haldnir af þekktum einstaklingum, þar má nefna Jón Gerald Sullenberger og Gogoyoko. 

Stefnum við að því að hafa fremstu fyrirtæki landsins á svæðinu og er þetta því kjörinn vettvangur fyrir nemendur að ná samkeppnisforskoti á samnema sína í leitinni að sumarstarfi eða jafnvel framtíðarstarfi.

Framadagar er viðburður sem enginn háskólanemi ætti að láta framhjá sér fara! 

tilbaka