M Þ M F F L S
« júlí 2010 »
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31
Pragma logo

Skrifað 07. mars 2010

Árshátíđ HR & árshátíđarkokteill Pragma

def

Næstkomandi föstudag(12. mars) verður árshátíð HR haldin með pompi og prakt í Vodafonehöllinni. Þema árshátíðarinnar er Las Vegas en húsið verður skreytt eftir því. Síðasti dagur miðasölunnar er mánudagurinn 8. mars.

Pragma ætlar að bjóða félagsmönnum sínum í kokteil-fyrirpartý sem haldið verður á Hótel Loftleiðum. Kokteilboðið hefst klukkan 17:30 og stendur til 19:20 en þá koma rútur sem skutla gestum á árshátíðina. Kunngert verður um úrslit kosninga sem fara fram á myschool í árshátíðarvikunni en einnig mun Elvis Presley kíkja í partýið og stíga nokkur vel valin spor. Við ætlum að hafa skráningu á myschool í fyrirpartýið svo við getum séð c.a. hve margir mæta. Við hvetjum ykkur sem flest til að skrá ykkur og taka þátt í kosningunni. Verð fyrir utanfélagsmenn er 1000kr.

Árshátíðarkveðja,
Stjórn Pragma

tilbaka