Vísindaferð í EJS með Markaðsráði og útgáfupartý Háskólablaðsins
Meðlimir Pragma fóru ásamt Markaðsráði í stórskemmtilega vísindaferð í EJS. Ferðin var vel heppnuð í alla staði og fyrirlestrar starfsmanna einkar skemmtilegir. Eftir ferðina var haldið í Vodafonehöllina þar sem útgáfupartý Háskólablaðsins fór fram. Húsfyllir var og áfengisbirgðir kláruðust!




